|
|||
2010-04-23 13:45:12 CEST 2010-04-23 13:46:11 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414Annað útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: Alls bárust 38 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 13.721 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.471 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,69%. Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 28. apríl 2010. |
|||
|