2016-07-12 12:53:10 CEST

2016-07-12 12:53:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Endurmat óskráðra eigna Tryggingamiðstöðvarinnar hf. umfram væntingar.


Við vinnslu hálfsársuppgjörs Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 2016 hafa óskráðar
eignir félagsins verið endurmetnar sem nemur á bilinu 1.000 - 1.200 m.kr. 
Hækkunina má fyrst og fremst rekja til viðskipta með undirliggjandi félög og
nýs gengis fasteignasjóða.  Þrátt fyrir slaka afkomu af skráðum
fjárfestingaeignum það sem af er ári er engu að síður reiknað með að félagið
geti staðið við áður útgefna áætlun um fjárfestingatekjur á fyrri árshelmingi. 
Aðrar fjárhagsupplýsingar liggja ekki fyrir en uppgjörið verður birt 24. ágúst
nk 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 5152609 / sigurdur@tm.is