2013-03-01 17:18:21 CET

2013-03-01 17:19:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Ársreikningur 2012


Hagnaður ársins 2012 í takt við væntingar

Hagnaður ársins 2012 nam 816 m.kr. samanborið við 951 m.kr. árið 2011. Lækkun
hagnaðar milli ára skýrist aðallega af minni vaxtatekjum vegna lækkunar á
breytilegum útlánavöxtum sjóðsins sem og minni eins skiptis vaxtatekjum vegna
fyrirfram uppgreiðslna lána. 

Meginhlutverk lánasjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofnunum
þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu
námu 5.000 m.kr. samanborið við 6.792 m.kr. árið áður. 

Sjóðurinn hefur aldrei tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og
vanskil voru engin við undirritun þessa ársreiknings. Sveitarfélögin bera ekki
ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en hafa heimild í lögum til að veita sjóðnum
veð í tekjum sínum sem tryggingu fyrir lánum sem þau taka hjá sjóðnum. Í árslok
voru 99% útlána sjóðsins til sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu með
slíkt veð. 

Eigið fé í árslok 2012 var 15.470 m.kr. á móti 15.129 m.kr. í árslok 2011.
Vegið eiginfjárhlutfall var 64% í árslok 2012 og hækkar úr 58% frá árslokum
2011. Heildareignir sjóðsins í árslok 2012 voru 70.212 m.kr. samanborið við
72.362 m.kr. í árslok 2011. 

Framtíðarhorfur

Gert er ráð fyrir að afkoma sjóðsins á árinu 2013 verði að mestu leyti í
samræmi við afkomu ársins 2012. Sem fyrr verður allt kapp lagt á að tryggja
lánshæfi sjóðsins og viðhalda því trausti sem fjárfestar hafa á skuldbindingum
hans. 

Lánasjóðurinn mun í meginatriðum starfa líkt og undanfarin ár þar sem stefnt
hefur verið að eflingu á starfsemi hans og að nýta gott lánstraust sjóðsins til
að útvega sveitarfélögunum lánsfé á hagstæðum kjörum. 



Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn þriðjudaginn 5. mars
2013 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson
framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara
spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30. 

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.