2017-06-27 11:24:46 CEST

2017-06-27 11:24:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Eik fasteignafélag hf.: Nýr framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs


Pálína  Gísladóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Eikar
fasteignafélags hf. Hún mun taka við starfinu af Arnari Hallssyni með haustinu.
Pálína  er með BSc gráðu í  umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands
og MSc gráðu í byggingarverkfræði frá sama skóla.
Pálína  hefur víðtæka reynslu  þegar kemur að  stýringu stórra verkefna. Hún kom
m.a.  að þróun og hönnun hótels, atvinnu-  og íbúðakjarnans sem nú er í byggingu
við  Hörpu ásamt  mörgum öðrum  verkefnum. Frá  árinu 2000 hefur hún starfað hjá
Mannviti  verkfræðistofu  eða  dótturfyrirtækjum  Mannvits.  Pálína hefur einnig
setið í ýmsum stjórnum yfir langt skeið eins og stjórn Mannvits, HRV og Brunns.
"Það  verður mikill liðsstyrkur fyrir Eik fasteignafélag að fá Pálinu til starfa
enda  er hún með góða  reynslu sem mun nýtast  félaginu vel" segir Garðar Hannes
Friðjónsson forstjóri Eikar.
Garðar  vill þakka Arnari Hallssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs
Eikar,  fyrir vel unnin störf  undanfarin ár sem hafa  verið viðburðarík hjá Eik
fasteignafélagi  og óskar  honum velfarnaðar  á nýjum  stað. Arnar hefur stofnað
ráðgjafafyrirtækið Atlas Ráðgjöf - Þróun og mannvirkjagerð ehf., sem mun sérhæfa
sig í hönnunarstjórn, framkvæmdaráðgjöf og stýriverktöku.
Þá  vill Garðar jafnframt þakka þann mikla áhuga á félaginu sem fjölmargar góðar
umsóknir í starfið báru vitni um.
Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200


[]