|
|||
![]() |
|||
2015-08-28 10:40:04 CEST 2015-08-28 10:40:05 CEST REGULATED INFORMATION SRE fjármögnun 2 - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins SRE fjármögnun 2 árið 2015Fagfjárfestasjóðurinn SRE fjármögnun 2 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf., í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri hluta ársins 2015, efnahagi hans 30. júní 2015 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins SRE fjármögnun 2 veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464. |
|||
|