|
|||
2014-04-11 13:45:00 CEST 2014-04-11 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 16 1013: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.200 m.kr. að nafnverði. 4 tilboðum var tekið fyrir 6.500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,090 (4,64% ávöxtunarkröfu). RIKB 20 0205: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.700 m.kr. að nafnverði. 5 tilboðum var tekið fyrir 1.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,950 (6,25% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 15. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 16. apríl 2014. |
|||
|