|
|||
![]() |
|||
2016-11-23 17:34:14 CET 2016-11-23 17:34:14 CET REGLERAD INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði á fjórum flokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildartilboð í útboðinu voru 35 talsins og námu samtals 5.440 m. kr. að nafnverði. Fimm tilboð að fjárhæð 900 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,77%-5,80%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 5,80% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 13.960 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Þrettán tilboð að fjárhæð 2.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,67%-5,99%. Tilboðum að fjárhæð 700 m. kr. að nafnverði var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,82%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m. kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins verður 1.660 m. kr. eftir útgáfuna. Þrjú tilboð að fjárhæð 640 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,39%-3,40%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 3,40% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 18.400 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Fjórtán tilboð að fjárhæð 1.860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,19%-3,25%. Engum tilboðum í flokkinn var tekið. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 30. nóvember 2016. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|