2012-06-14 18:38:05 CEST

2012-06-14 18:39:06 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 22. maí  sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 20 júní nk.  kom fram í
útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags
14. júní. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
104,498860 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 22. júní 2012 (krafa 2,90%).[1]

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).



[1]Hreint verð (e. clean price) er 101,50.