2012-06-14 18:45:49 CEST

2012-06-14 18:46:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Kaupverð á ríkisverðbréfum fyrir gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands 20. júní


Þátttakendur sem fá samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands þann
20. júní nk. gefst kostur á að selja ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga
fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Í fréttatilkynningu
Lánamála ríkisins þann 22. maí 2012 kom fram að kaupverð á ríkisverðbréfunum
verði birt 14. júní 2012. 

  Aðilar sem eiga samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabankans eiga þess
kost að selja Lánamálum ríkisverðbréfin sín á eftirfarandi kjörum miðað við
uppgjör 22. Júní. 

Flokkar       Verð    Flatir Vextir  Flokkar       Verð án áf. vaxta  Áv. krafa
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 0716  99,760          3,61%  RIKB 12 0824             99,900      4,76%
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 0815  99,450          3,69%  RIKB 13 0517            103,570      3,16%
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 0917  99,100          3,76%                                            
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 1015  98,795          3,82%                                            
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 1115  98,450          3,89%                                            
-------------------------------------------------------------------------------
RIKV 12 1217  98,085          3,95%                                            
-------------------------------------------------------------------------------

Viðskiptavakar sem ætla að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti með
framangreind ríkisverðbréf þurfa að upplýsa Lánamál ríkisins um það eigi síðar
en kl. 09.00 þann 21. júní. Ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum fyrir
klukkan 11.00 þann 22. júní. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu bréfanna
og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag.