2009-07-06 18:49:33 CEST

2009-07-06 18:50:33 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Sparisjóður Mýrasýslu - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Fjármálaeftirlitið skipar SPM bráðabirgðastjórn


Með vísan til 100 gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, eins og þeim
var breytt með lögum nr. 44/2009, skipar Fjármálaeftirlitið þriggja manna
bráðabirgðastjórn sem fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum
sparisjóðsins og stjórn og fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Mýrasýslu hefði
ella haft á hendi, sbr. þó 4. tl. 2. mgr. 101. gr. laganna. 

Í bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu eru skipuð:
• Sigurður R. Arnalds, hrl., formaður
• Jón Haukur Hauksson, hdl.
• Margrét Gunnlaugsdóttir, hdl.