2009-01-13 13:59:30 CET

2009-01-13 14:00:31 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr framkvæmdastjóri hjá AEW Delford


Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri AEW Delford Systems,
dótturfyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi, frá og með 1. febrúar n.k.
Hann tekur við að Ásgeiri Ásgeirssyni sem mun nú einbeita sér að fullu að stöðu
sinni sem framkvæmdastjóri vöruþróunar, sem hann hefur gegnt samhliða starfi
sínu hjá AEW Delford. 

Roy Mercer hefur starfað sem stjórnunarráðgjafi hjá Marel Food Systems síðan í
ársbyrjun 2008. Þar áður stýrði hann skrifstofu Scanvaegt í Bretlandi en þangað
réðst hann til starfa árið 1988. Roy hefur mjög víðtæka reynslu í iðnaðinum,
bæði á sviði sölu og þjónustu, sem og í almennum rekstri.