|
|||
![]() |
|||
2016-02-19 17:43:11 CET 2016-02-19 17:43:11 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokiðÍ 7. viku 2016 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.122.773 eigin hluti fyrir kr. 13.176.444 eins og hér segir: Dagsetni Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Eigin hlutir Sjóvá eftir ng hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 15.2.201 15:58:1 800.000 11,75 9.400.00 39.677.227 6 0 0 16.2.201 10:56:2 19.066 11,70 223.072 39.696.293 6 5 16.2.201 11:16:0 303.667 11,70 3.552.90 39.999.960 6 4 4 19.2.201 10:30:0 40 11,69 468 40.000.000 6 7 Samtals 1.122.773 13.176.4 44 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar (Nasdaq Iceland) dags. 7. júlí 2015. Vísað er til fyrrnefndrar tilkynningar Sjóvá-Almennra trygginga hf. til Kauphallar um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, dags. 7. júlí 2015, og fyrstu reglubundinnar tilkynningar um kaup á eigin bréfum, dags. 13. júlí 2015. Eins og þar var greint frá var áætlað að kaupa að hámarki 40.000.000 hluti, eða sem nemur 2,51% af útgefnum hlutum í félaginu. Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldi fjárhæð endurkaupanna þó ekki verða hærri en 500 milljónir króna. Reglubundnar tilkynningar til Kauphallar um kaup Sjóvá á eigin bréfum hafa upplýst um framgang kaupanna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar Sjóvá er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir 40.000.000 hlutir í félaginu sem samsvarar 2,51% af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 486.656.145. Sjóvá á nú samtals 2,51% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994. Endurkaupaáætlun var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða á netfanginu fjarfestar@sjova.is |
|||
|