2016-02-19 20:47:50 CET

2016-02-19 20:47:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Kaup á fasteignafélögum í rekstri Stefnis heimiluð af Samkeppniseftirlitinu


Í október síðastliðnum var tilkynnt um samninga Reita við eigendur
fasteignasjóðanna SRE I slhf. og SRE II slhf. sem eru í rekstri Stefnis hf., um
kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum. Ákveðnir fyrirvarar, þar með talið
samþykki Samkeppniseftirlitsins, voru gerðir fyrir kaupunum. Sjá nánar hér. 

Félaginu hefur borist ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna málsins þar sem
fram að eftirlitið telji ekki forsendur til að aðhafast vegna kaupa Reita á
fasteignafélögum í rekstri Stefnis. 

Unnið verður að því á næstu vikum að klára frágang viðskiptanna og tilkynnt
verður þegar ljóst er hvenær yfirtaka félagsins á hinu keypta fer fram. 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags, í síma 660 3320 eða
gudjon@reitir.is.