|
|||
2015-05-13 10:18:00 CEST 2015-05-13 10:18:40 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - ÁrsreikningurIslandsbanki hf. : Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2015HELSTU NIÐURSTÖÐUR 1F 2015 * Hagnaður bankans eftir skatta var 5,4 ma. kr. á fyrsta ársfjórðungi 2015 samanborið við 8,3 ma. kr. á sama tímabili 2014 en þá voru tekjur af einskiptisliðum umfangsmeiri. * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,8% á fjórðungnum samanborið við 19,3% á sama tímabili 2014. * Eiginfjárhlutfallið er sterkt, var 28,4% (2014: 29,6%) og eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 25,7% (2014: 26,5%). * Hreinar vaxtatekjur voru 6,2 ma. kr. á fyrsta ársfjórðungi 2015 (1F14 6,6 ma. kr.), sem er lækkun um 6,8%. Vaxtamunur var 2,7% á fjórðungnum (1F14: 3,0%). * Hreinar þóknanatekjur voru 2,9 ma. kr. (1F14: 2,9 ma. kr.). * Stjórnunarkostnaður lækkaði um 1.5% eða raunlækkun um 2.6%. Kostnaðarhlutfall var 55,3% á fjórðungnum (1F14: 55,1%). Bankaskattur og einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls. * Vogunarhlutfall var 19,7% við lok tímabilsins, sem telst hóflegt í alþjóðlegum samanburði. * Hlutfall lána með varúðarafskrift og lána með vanskil umfram 90 daga var 3,0% (2014: 3,5%). * Heildareignir voru 926 ma. kr. (2014: 911ma. kr.). Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: Við erum ánægð með afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi sem var umfram væntingar okkar. Kostnaður heldur áfram að lækka enda mikilvægt að styrkja enn frekar arðsemi af reglulegri starfsemi. Góður árangur í rekstri bankans hefur skilað því að lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings mat bankann, fyrstan hér á landi frá árinu 2008, í fjárfestingarflokk með stöðugum horfum. Sú niðurstaða er til þess fallin að skila bankanum hagstæðari kjörum í komandi skuldabréfaútgáfum bankans. Íslensk fyrirtæki eru nú í auknum mæli að nýta sér áhættustýringarvörur til að lágmarka rekstraráhættu og skapa sér fyrirsjáanlegt fjárhagslegt umhverfi. Þetta sýnir sig í auknum vexti í sölu áhættustýringarvara hjá Mörkuðum, sem er enn eitt batamerkið á fjármálamarkaðinum. Aukning í nýjum húsnæðislánum var tæp 60% á fjórðungnum miðað við sama tímabil í fyrra. Við sjáum vaxandi eftirspurn eftir fyrstukaupalánum hjá viðskiptavinum sem eru að festa kaup á sinni fyrstu íbúð. Þjónusta í útibúum hefur breyst nokkuð síðustu ár en viðskiptavinir leita í auknum mæli eftir ráðgjöf en framkvæma einfaldari færslur með öðrum dreifileiðum, svo sem netbanka og appi. Nýtt útibú sem opnað var í vikunni mætir þessum breyttu áherslum en þar voru útibúin í Lækjargötu og Eiðistorgi sameinuð í eitt útibú á Granda. Það er einnig í samræmi við áætlanir bankans um hagræðingu um leið og áhersla er lögð á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu sem tekur mið að þörfum þeirra. Símafundur á ensku Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 13.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla, www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752 Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1921274] |
|||
|