|
|||
2014-02-13 12:46:00 CET 2014-02-13 12:46:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0515 og RIKV 14 0815Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0515 og RIKV 14 0815 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 0515: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.100 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 750 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,960 (flatir vextir 4,35%). RIKV 14 0815: Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.680 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.170 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,810 (flatir vextir 4,50%). |
|||
|