2017-09-07 12:35:34 CEST

2017-09-07 12:35:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hafnarfjarðarkaupstaður - Ársreikningur

Árshlutareikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 30.06.2017


Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrri hluta ársins var jákvæð um 908
milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 285 milljónir
króna. Helstu frávik eru að tekjur eru alls um  400 milljónum krónum hærri en
áætlun gerði ráð fyrir og fjármagnskostnaður er um 203 milljónum króna lægri en
áætlun gerði ráð fyrir vegna lægri verðbóta.

Tekjur námu 12.160 milljónum króna sem er eins og áður sagði um 400 milljónir
umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld eru stærstu útgjaldaliðir
sveitarfélagsins og námu þau 5.768 milljónum króna eða á áætlun. Annar kostnaður
var 3.798 milljónir sem er 63 milljónum króna undir áætlun. Rekstrarniðurstaða
fyrir afskriftir var jákvæð sem nam 2.107 milljónum króna. Afskriftir voru 461
milljón króna og fjármagnsliðir 738 milljónir króna. Veltufé frá rekstri nam um
2.014 milljónum króna sem er um 16,6% á móti heildartekjum.

Það er rétt að vekja athygli á að vegna samkomulags við Brú lífeyrissjóð munu
verða gjaldfærðar á árinu um 600 milljónir króna til viðbótar við áður áætlaða
gjaldfærslu ársins. Endanlegt uppgjör mun fara fram á haustmánuðum. Lóðasala
ársins hefur hins vegar gengið vel það sem af er ári og það liggur fyrir að í
árslok verður færð tekjufærsla vegna seldra lóða sem mun vega upp á móti þessari
gjaldfærslu.

Rekstur málaflokka gekk vel og var í takt við áætlanir. Stærsti málaflokkurinn
er fræðslu- og uppeldismál en til hans var varið um 5.632 milljónum króna, til
félagsþjónustu um 1.551 milljónum króna og til æskulýðs- og íþróttamála um 937
milljónum króna.

Heildareignir námu í júnílok samtals 49.032 milljónum króna og höfðu þær hækkað
um 729 milljónir frá árslokum 2016. Heildarskuldir og skuldbindingar námu
samtals 38.979 milljónum króna og höfðu lækkað um 178 milljónir frá árslokum.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 29.014 um mitt ár samanborið við 28.779 í ársbyrjun sem
er fjölgun um 235 eða 0,8%.

Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2017 var lagður fram í
bæjarráði Hafnarfjarðar í dag 07. september 2017 og er aðgengilegur á vef
Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is


[]