2018-01-05 19:53:01 CET

2018-01-05 19:54:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Boðun hluthafafundar

Hluthafafundur Nýherja hf. 30. janúar 2018


HLUTHAFAFUNDUR NÝHERJA HF.

Þriðjudaginn 30. janúar 2018 kl. 16.00

í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37

Dagskrá fundarins 

1.     Tillaga stjórnar til breytinga á grein 1.1 samþykkta félagsins þess efnis að nafn félagsins verði Origo hf.

2.     Önnur mál.

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 laugardaginn 18. janúar 2018. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Aðrar upplýsingar

Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem kunna að vera lögð fyrir hluthafafundin, þ.m.t. tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn er að finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is

Reykjavík, 5. janúar 2018,

stjórn Nýherja hf.