2018-01-08 07:32:11 CET

2018-01-08 07:33:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Síminn hf. – Breyting á stjórn


Sigríður Hrólfsdóttir, stjórnarformaður Símans, er látin. Sigríður var ásamt fjölskyldu sinni stödd erlendis í fríi þegar hún varð bráðkvödd.

Sigríður hefur setið í stjórn Símans frá júlí 2013 og verið stjórnarformaður félagsins frá sama tíma.

Starfsfólk og stjórn Símans eru harmi slegin yfir þessu óvænta fráfalli og votta fjölskyldu Sigríðar innilega samúð. Við erum afar þakklát fyrir ósérhlífið framlag Sigríðar til félagsins á undanförnum árum. 

Bertrand B. Kan er varaformaður stjórnar Símans.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson, forstjóri Símans hf., s. 550-6003 (orri@siminn.is)