2013-05-24 17:50:04 CEST

2013-05-24 17:51:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Haga hf. - endanleg dagskrá og tillögur


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013
og hefst hann kl. 09:00 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi í Kópavogi. 



Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda,
     lagður fram til samþykktar.
  3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2012/13.
  4. Tillaga að nýjum samþykktum félagsins.
  5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
  7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
  8. Tillögur stjórnar um arðgreiðslustefnu.
  9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.



Tillögur stjórnar Haga hf.:



  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að ársreikningur félagsins fyrir
starfsárið 2012/13, ásamt skýrslu endurskoðanda, verði samþykktur. 



  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa
vegna reikningsársins 2012/13 sem nemur 0,50 krónum á hlut, eins og fram kemur
í ársreikningi félagsins. Heildararðgreiðslan nemur því tæpum 586 milljónum
króna. 

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 12. júní 2013.
Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án
réttar til arðs vegna reikningsársins 2012/13 verður því 10. júní 2013, eða
næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðgreiðslu verður 26.
júní 2013. 



  1. Nýjar samþykktir félagsins (dagskrárliður 4)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins meðfylgjandi tillögu að nýjum
samþykktum. Stjórnin hefur í ljósi breytinga á hlutafélagalögum og reynslu af
skráningu félagsins látið endurskoða samþykktir félagsins og uppfæra. Engar
efnislegar breytingar eru gerðar frá því sem er í núverandi samþykktum en við
þær aukið. Meðfylgjandi eru tillagan og greinargerð þar sem tilteknar eru
helstu breytingar frá núgildandi samþykktum. 



  1. Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 5)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem
hér segir: Stjórnarformaður kr. 500.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr.
250.000,- á mánuði. 



  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi
starfskjarastefna verði samþykkt. 



  1. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 7)

Framboð til setu í stjórn Haga hf. skal berast skriflega til stjórnar félagsins
að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um
frambjóðendur verða birtar að þeim fresti loknum. 

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG ehf., kt.
590975-0449, verði kosinn endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.
Endurskoðanda félagsins verður greitt í samræmi við útgefna og samþykkta
reikninga. 



  1. Arðgreiðslustefna (dagskrárliður 8)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi
arðgreiðslustefna verði samþykkt. 



Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila
til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum
bréflega. Meðfylgjandi má finna nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil. 

Hluthöfum er bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram
ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi
til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 28. maí nk.)
á netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr.
hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 51/2013. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann
dag. Hluthöfum er einnig  bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar
skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund. 

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e.
forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða
annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða
einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum. 



                                Stjórn Haga hf.