2014-10-31 13:20:06 CET

2014-10-31 13:21:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Fyrirtækjafréttir

VEDS1 14 01 - Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að
nýta sér heimild til að greiða inná höfuðstól skuldabréfsins á næsta
vaxtagjalddaga sem er þann 15. nóvember 2014 næstkomandi. Sjóðurinn mun því
mánudaginn 17. nóvember greiða alls 1.700.000.000,- króna inn á höfuðstól
bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á
skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði. 



Nánari upplýsingar veitir Rekstrarfélag Virðingar hf. sem er rekstraraðili
útgefanda í síma 5856500