|
|||
2009-03-03 18:34:18 CET 2009-03-03 18:35:47 CET REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirSamkomulag milli Landsbanka Íslands hf. og Straums-Burðaráss hf. um uppgjör krafna3. mars 2009 Landsbanki Íslands hf. (Landsbankinn) og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hafa gengið frá samkomulagi um uppgjör krafna í milli bankanna þ.m.t. kröfum vegna peningamarkaðslína, lána, afleiðustaða, skuldabréfa og ábyrgða. Uppgjörið felur sér í skuldajöfnun og yfirfærslur eigna frá Straumi til Landsbankans. Samningurinn hefur ekki efnisleg áhrif á rekstrarreikning Straums og engin áhrif á lausafjárstöðu bankans. Hins vegar minnka heildareignir Straums um u.þ.b. 200 milljónir Evra og hækkar eiginfjárhlutfall (CAD) um tæp 2%. Samningur þessi er í samræmi við stefnu Straums um að draga úr stærð efnahagsreiknings bankans og heildaráhættu í rekstri. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskiptasviðs T: +354 585 6707 georg@straumur.com |
|||
|