2013-11-27 09:30:22 CET

2013-11-27 09:31:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Islandsbanki hf. : 3Q2013 afkoma fyrir þriðja árshluta


HELSTU NIÐURSTÖÐUR

  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 4,2 ma. kr. á  3F13 (3F12: 4,6 ma.
    kr.) og 15,4 ma. kr. á fyrstu níu mánuðum ársins (9M12: 16,2 ma. kr.).
  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 10,6% á fjórðungnum (3F12: 13,3%) en
    13,4% sé horft til fyrstu níu mánaða ársins (9M12: 16,3%). Lækkun á arðsemi
    skýrist að mestu af hærra eigin fé, sem hefur hækkað um 3% á milli fjórðunga
    og 14% á milli ára.
  * Eiginfjárhlutfall var áfram sterkt eða 27,2% (júní 2013: 27,4%) og
    eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 23,9% (júní 2013: 24,0%), þrátt fyrir 3,5%
    hækkun á áhættuvegnum eignum á fjórðungnum í 663 ma. kr. (júní 2013: 641 ma.
    kr.).
  * Hreinar vaxtatekjur námu 7,4 ma. kr. (3F12: 7,8 ma. kr.) sem er lækkun um
    5.1% milli ára. Vaxtamunur var 3,5% (2F13: 3,4%) og fer lækkandi samhliða
    því að afföll á lánasafni sem keypt var frá Glitni fara úr bókum bankans.
  * Virðisbreyting útlána og krafna var jákvæð um 0,6 ma. kr. á fjórðungnum
    (3F12: 0,7 ma. kr.) og um 8,5 ma. kr. fyrir fyrstu níu mánuði ársins (9M12:
    2,8 ma. kr.).
  * Hreinar þóknanatekjur jukust í 2,5 ma. kr. á fjórðungnum (3F12: 2,3 ma. kr.)
    og 7,6 ma. kr sé litið til fyrstu níu mánuða ársins (9M12: 6,7 ma. kr.).
    Hækkunin er um 8% á milli ára og 13% yfir 9M og má að mestu rekja til
    markaða, viðskiptabanka, eignastýringar og dótturfélaga bankans.
  * Kostnaðarhlutfall lækkaði í 48,5% (3F12: 50,6%).
  * Frá stofnun bankans hafa um 35 þúsund einstaklingar og um 4.100 þúsund
    fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem
    nema um 524 ma. kr.
  * Endurskipulagning gengur vel, hlutfall lána í endurskipulagningu var 9,8%
    (Sept.2012: 17,4%), meira en 90 daga vanskil voru 5% (des. 2012: 8%).
  * Heildareignir voru 863 ma. kr. við lok tímabilsins (júní 2013: 823 ma. kr.),
    og útlán til viðskiptavina hækkuðu um 2% í 549 ma. kr. (júní 2013: 539 ma.
    kr.).
  * Heildarinnlán hækkuðu í 526 ma. kr. (júní 2013: 506 ma. kr.) en þar koma
    fram eðlilegar sveiflur í innlánum viðskiptavina og fjármálastofnanna.



Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

      "Það sem uppúr stendur á fyrstu níu mánuða ársins er sá góði árangur sem
við höfum náð í rekstrarhagræðingu þar sem kostnaður bankans lækkaði um 732
milljónir sem er raunlækkun kostnaðar 7,5% á milli ára. Þessi lækkun byggir á
ýmiskonar markvissum aðgerðum m.a. sameiningu útibúa.

      Afkoma bankans var í takt við áætlanir og arðsemi eigin fjár var 13,4% sem
hlýtur að teljast gott í ljósi sterkrar eiginfjárstöðu en eiginfjárhlutfall
bankans var 27,2%.

      Þó svo að sumarið seti gjarnan svip sinn á þennan ársfjórðung þá var engu
að síður mikið um að vera í bankanum. Þóknanatekjur jukust um 13% á milli ára í
7,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 6,7 milljarða á sama
tímabili í fyrra.

Gæði lánasafnsins jókst milli fjórðunga, hlutfall lána í meira en 90 daga
vanskilum var 5% í lok tímabilsins og hlutfall lána í endurskipulagningu (LPA)
var 9,8%, sem er mikill árangur en staða lána í endurskipulagningu nam 44% árið
2009."



FJÁRFESTAKYNNING - SÍMAFUNDUR

Síðar í dag kl. 13 mun bankinn bjóða markaðsaðilum upp á símafund. Fundurinn fer
fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og
afkomu bankans. Nauðsynlegt að gestir skrái sig ir@islandsbanki.is.



Öll gögn er tengjast afkomu bankans má finna á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925..


[HUG#1746070]