|
|||
2013-10-23 18:23:03 CEST 2013-10-23 18:24:04 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - ÁrsreikningurMarel hf. - Afkoma þriðja ársfjórðungs 2013Bætt framlegð - Markaðir sýna merki um viðsnúning (Allar fjárhæðir í EUR) -- Tekjur á 3. ársfjórðungi 2013 námu 156,9 milljónum evra, sem samsvarar 4,5% lækkun samanborið við sama tímabil árið 2012 [164,3 milljónir evra]. -- EBITDA var 19,5 milljónir evra, sem er 12,4% af tekjum [Q3 2012: 20,5 milljónir evra]. -- Rekstrarhagnaður (EBIT) var 12,9 milljónir evra, sem er 8,2% af tekjum [Q3 2012: 14,1 milljón evra]. -- Hagnaður eftir skatta nam 6,0 milljónum evra [Q3 2012: 8,4 milljónir evra]. Hagnaður á hlut (e.EPS) var 0,81 evru sent [Q3 2012: 1,15 evru sent] . -- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 3,0 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi og 45,6 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins [Fyrstu níu mánuðir 2012: 37,0m]. Nettó vaxtaberandi skuldir námu 239,0 milljónum evra í lok fjórðungsins samanborið við 261,1 milljón evra í lok 3. ársfjórðungs 2012. -- Pantanabók stóð í 138,3 milljónum evra í lok fjórðungsins [Q3 2012: 151,4 milljónir evra] sem samsvarar um 4,9% hækkun miðað við lok 2. ársfjórðungs [131.8 milljón evra]. Afkoma Marel á fyrstu níu mánuðum ársins 2013 endurspeglar krefjandi markaðsaðstæður og hægari bata en áður var gert ráð fyrir. Tekjur fyrstu níu mánaða ársins lækka um 7,9% miðað við sama tímabil fyrra árs og námu 493,4 milljónum evra. Rekstrarhagnaður (EBIT) fyrir sama tímabil nemur 7,2% af tekjum og er undir langtímarekstrarmarkmiði félagsins um árlega 10-12% EBIT framlegð. Búast má við að EBIT framlegð næsta ársfjórðungs verði í samræmi við niðurstöðu þriðja ársfjórðungs. Markaðsaðstæður eru enn krefjandi en batamerki eru í sjónmáli. Á meðan jákvæð teikn eru í Norður-Ameríku er ástandið í Evrópu enn viðkvæmt. Mismunandi aðstæður ríkja á nýmörkuðum en langtímahorfur eru góðar. Tekjur af þjónustu og varahlutum jukust á þriðja ársfjórðungi en tekjur af stærri verkefnum láta enn á sér standa. Framlegðarhlutföll hafa batnað sem endurspeglar árangur í rekstrahagkvæmi og kostnaðaraðhaldi þrátt fyrir töf á stærri verkefnum. Marel býst við að tekjur ársins 2013 munu lækka um 6-8% á milli ára. Marel gerir ráð fyrir hóflegum vexti tekna á næsta ári í kjölfar batnandi aðstæðna á mörkuðum. Theo Hoen, forstjóri: “Afkoma Marel er viðunandi í ljósi markaðsaðstæðna. Viðsnúningur hefur verið hægari en við höfum áður séð og höfðum búist við. Skortur á stórum verkefnum hefur neikvæð áhrif á tekjumyndun. Við erum þess fullviss að fjárfestingaþörf sé að byggjast upp og þegar markaðsaðstæður batna þá erum við í stakk búin til að mæta eftirspurninni. Við sáum þetta gerast árið 2009 þegar matvælaframleiðendur héldu að sér höndum og frestuðu fjárfestingum vegna efnahagslegrar óvissu. Ári seinna þegar aðstæður bötnuðu braust þessi uppsafnaða fjárfestingaþörf út af krafti þar sem undirliggjandi spurn eftir próteini hafði haldið áfram að vaxa. Þannig er einnig staðan nú. Á meðan nýtum við tímann til að veita viðskiptavinum okkar aukna og betri þjónustu í gegnum sölu- og þjónustunet okkar. Við erum bjartsýn á framtíðarhorfurnar og munum halda áfram að viðhalda sölu- og þjónustuneti okkar ásamt því að viðhalda fjárfestingu í nýsköpun og markaðssókn. Á sama tíma leggjum við áfram ríka áherslu á rekstrarhagkvæmni.“ Pantanabók hækkar um 5% Nýjar pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 163,3 milljónum evra samanborið við 159,1 milljón evra á 2. ársfjórðungi 2013. Pantanabókin stóð í 138,3 milljónum evra í lok 3. ársfjórðungs samanborið við 131,8 milljónir evra í lok 2. ársfjórðungs [Q3 2012: 151,4 milljónir evra]. Hækkun pantanabókar um 5% frá fyrri fjórðungi er til vitnis um batamerki á helstu mörkuðum Marel en endurspeglar um leið hversu miklar hömlur skortur á stórum verkefnum setur á frekari vöxt pantanabókarinnar. Viðskiptavinir eru enn hikandi varðandi fjárfestingar vegna erfiðra markaðsaðstæðna og ákvarðanir um nýjar fjárfestingar taka nú mun lengri tíma en áður. Þessar aðstæður eiga við markaðinn í heild og Marel telur sig ekki vera að missa markaðshlutdeild. Staða Marel á markaðinum er sterk og framtíðarhorfur fyrir nýjar pantanir lofa góðu enda er útlit fyrir að prótein iðnaðurinn haldi áfram að vaxa og fjárfestingaþörfin byggist upp. Horfur Langtímamarkmið Marel gera ráð fyrir 5-6% vexti tekna á ári (samanlagt árlegt vaxtarstig e. CAGR). Marel telur eftir sem áður að viðsnúningur verði á mörkuðum en það gæti tekið lengri tíma en áður var talið. Marel býst við að tekjur ársins 2013 muni lækka um 6-8% á milli ára. Marel gerir ráð fyrir hóflegum vexti tekna á næsta ári í kjölfar batnandi aðstæðna á mörkuðum. Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk alþjóðleg markaðsstaða í fjórum lykiliðnuðum félagsins stuðli að góðum vexti og aukinni arðsemi, þar sem undirliggjandi markaðsvöxtur er til staðar. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna. Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel: www.marel.com/2013Q3 Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins. Kynningarfundur 24. október 2013 Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 24. október kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast Birtingardagar fyrir reikningsárið 2013 og 2014 -- 4. ársfjórðungur 2013 5. febrúar 2014 -- Aðalfundur 5. mars 2014 -- 1. ársfjórðungur 2014 28. apríl 2014 -- 2. ársfjórðungur 2014 23. júlí 2014 -- 3. ársfjórðungur 2014 22. október 2014 -- 4. ársfjórðungur 2014 4. febrúar 2015 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Frekari upplýsingar veita: Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar og fjárfestatengsla. Símar: 563 -8464 og 825-8464 Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur í fjárfestatengslum. Símar: 563-8626 og 853-8626 Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563 8072. Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila. Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi: Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku. |
|||
|