|
|||
2015-06-12 13:22:48 CEST 2015-06-12 13:23:48 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMálið varðar auglýsingu á útdregnum húsbréfum og birtingu þeirra þann 15. júní 2015. En þau eru til innlausnar 15. ágúst 2015.Vegna verkfalls lögfræðinga, hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, er ógerlegt að draga út þau númer húsbréfa sem auglýsa á eigi síðar en 15. júní n.k. og eiga að vera til innlausnar 15. ágúst 2015. Í reglugerð um húsbréf segir að númer útdreginna húsbréfa skulu birt í Lögbirtingablaði í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir gjalddaga. Einnig segir að útdráttur skuli fara fram hjá Raunvísindastofnun Háskólans að viðstöddum fulltrúa Íbúðalánasjóðs undir umsjón lögbókanda sem kemur frá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu. Eftirtaldir flokkar og nafnverð eru á innlausn þann 15. ágúst n.k. 1. flokkur 1990 IBH15-0815 2.220.000 2. flokkur 1990 IBH15-1115 3.650.000 2. flokkur 1991 IBH16-0515 4.970.000 3. flokkur 1992 IBH17-0815 2.330.000 2. flokkur 1993 IBH18-0815 2.110.000 2. flokkur 1994 IBH19-0515 6.220.000 3. flokkur 1994 IBH19-0815 2.110.000 Útdráttur fer fram um leið og hægt verður að draga húsbréfin út og þau auglýst í kjölfarið. Stefnt er að því að þessi húsbréf verði innleyst þann 15. ágúst 2015 |
|||
|