2011-10-21 13:45:50 CEST

2011-10-21 13:46:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 22 1026:
Alls bárust 58 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.956 m.kr. að nafnverði. 43
tilboðum var tekið fyrir 12.461 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,263 (7,35%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25.
október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 26. október 2011.