2014-08-22 17:26:43 CEST

2014-08-22 17:27:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2014


Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar - júní 2014, var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. ágúst 2014. 

Hagnaður tímabilsins nam 75,3 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní
skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 16,36% en var
16,0% í lok árs 2013. 

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr.
347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og
atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að
undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að
markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.
Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun
fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum.
Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við
atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera
áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og
atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð
svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum. 

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar - júní 2014

  -- Hagnaður tímabilsins nam 75,3 milljónum króna.
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 16,36% en skal að
     lágmarki vera 8%
  -- Hreinar vaxtatekjur voru 172,7 milljónir króna eða 41,6% af vaxtatekjum,
     samanborið við 221,3 milljónir króna (42,0% af vaxtatekjum) hreinar
     vaxtatekjur á sama tímabili 2013.
  -- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 204,9 milljónum króna samanborið við
     176,9 milljónir á sama tímabili 2013.
  -- Eignir námu 14.506 milljónum króna og hafa lækkað um 366,0 milljónir frá
     áramótum.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 11.087 milljónir.
  -- Skuldir námu 12.129 milljónum króna og lækkuðu um 441,3 milljónir frá
     áramótum.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 20,4 milljónum króna. 

Um árshlutauppgjörið

Hagnaður tímabilsins nam 75,3 milljónum króna.  Skýrist hagnaður tímabilsins
fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána og matsbreytingu
hlutabréfa. 

Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 16,36% í lok tímabilsins.

Horfur

Fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra var á árinu 2013 rekið dómsmál þar sem
tekist var á um lögmæti þess að skuldbreyta verðtryggðum lánum í íslenskum
krónum í lán í erlendum myntum með útgáfu viðauka.  Dómur féll þar 29. nóvember
2013, þar sem fallist var á lögmæti svo skuldbreyttra lána Byggðastofnunar og
hefur dómnum verið áfrýjað og er von á niðurstöðu Hæstaréttar á síðari hluta
ársins 2014.  Veðandlag hins umdeilda láns var selt á nauðungarsölu í apríl
2014 og hefur stofnunin fengið kröfu sína greidda að fullu.  Uppreiknuð lán
stefnanda námu 213 milljónum króna en verði fallist á kröfur hans munu þau
lækka um allt að 50%  Samsvarandi útlán hjá stofnuninni nema að kröfuvirði
512,4 milljónum króna. Ekki hefur verið fært sérstakt varúðarframlag á
afskriftarreikning vegna þessa.  Að mati lögmanns Byggðastofnunar benda dómar
Hæstaréttar, sem fallið hafa í sambærilegum málum (sbr. t.d. Hrd. 498/2013),
eindregið til þess að Byggðastofnun verði sýknuð. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is