2011-06-09 13:45:30 CEST

2011-06-09 13:46:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:
Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.400 m.kr. að nafnverði.
Eitt tilboð var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,400
(6,35% ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 14.
júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 15. júní 2011. 

Þar sem markmiðum í útgáfumálum ríkissjóðs fyrir annan ársfjórðung hefur verið
náð, verður hætt við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 24.
júní.

NidurstodurRIKB.pdf