|
|||
![]() |
|||
2016-11-14 14:50:33 CET 2016-11-14 14:50:33 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 171120, ARION 170519 og ARION 170421Arion banki verður með víxlaútboð fimmtudaginn 17. nóvember 2016. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. nóvember 2017, 19. maí 2017 og 21. apríl 2017. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 12:00 þann 17. nóvember en greiðslu- og uppgjörsdagur er 21. nóvember 2016. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|