2017-10-25 18:39:13 CEST

2017-10-25 18:39:13 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf.: S&P hækkar lánshæfismat Íslandsbanka í BBB+/A-2 með stöðugum horfum


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hækkaði í dag
lánshæfismat Íslandsbanka úr BBB/A-2 í BBB+/A-2 með stöðugum horfum.

Hækkun á lánshæfismati bankans byggir að mestu á batnandi rekstrarumhverfi
íslenska bankakerfisins í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta og lækkandi skuldastöðu
fyrirtækja og heimila.  Vegna þessa telur S&P að íslenska bankakerfið hafi
styrkts og eiginfjárstaða Íslandsbanka batnað þegar horft er til langs tíma að
teknu tilliti til áhættu í umhverfinu.

Stöðugar horfur á einkunn bankans endurspegla þá skoðun S&P að íslenskt
efnahagslíf muni áfram standa á traustum fótum og að bankinn viðhaldi sterkri
eiginfjárstöðu á komandi árum á sama tíma og hann haldi áfram að ná fram
hagstæðari fjármagnsskipan.

Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka:

"Það er ánægjulegt að sjá lánhæfismat bankans hækka og trúna aukast á íslensku
efnahagslífi og fjármálakerfi. Hækkun á lánshæfismatseinkunn bankans er í takt
við hagstæða þróun á vaxtaálagi á erlendum skuldabréfaútgáfum og aukinn áhuga
erlendra fjárfesta á skuldabréfum bankans undanfarna mánuði sem kemur sér vel
fyrir viðskiptavini bankans. Hækkunin er jafnframt skýrt merki um góðan árangur
við uppbyggingu bankans og íslensks efnahagslífs á síðustu árum."

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárstýring - Jóhann Ottó Wathne,  johann.wathne@islandsbanki.is og í síma
    844 4607.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]