2014-04-29 17:39:45 CEST

2014-04-29 17:40:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Grindavíkurbær - Ársreikningur

Ársreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2013


Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2013 verður lagður fram
til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 29. apríl 2014. 

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn
og verður seinni  umræða þann 13. maí 2014 og á þeim fundi er samþykkt
bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð. 

   Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við
afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar
viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða
niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri
áritun.