|
|||
2009-09-28 12:13:16 CEST 2009-09-28 12:14:16 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir- Icelandair stækkar flugáætlun og stefnir að mikilli fjölgun ferðamanna á næsta ári-Eykur flug um allt að 10% milli ára -Fjölgar erlendum ferðamönnum um 20-25 þúsund -Skapar yfir 400 störf í flugi og ferðaþjónustu um allt land Icelandair hefur ákveðið að auka áætlunarflug sitt á næsta ári um allt að 10% og gera stórátak í því að fjölga ferðamönnum til landsins. Icelandair flýgur til Íslands frá 26 borgum í Evrópu og Norður-Ameríku og mun á næsta sumri fjölga vikulegum ferðum úr 140 í alls 155 flug á viku eða 23 flug daglega á háannatímanum. Icelandair bætir einni Boeing 757 farþegaþotu í áætlunarflugflotann og verður með 12 þotur í rekstri næsta sumar. Með þessari aukningu mun félagið þétta áætlun sína til fjölmargra staða og bæta við tveimur áfangastöðum, Brussel í Belgíu og Þrándheimi í Noregi. "Við ætlum einfaldlega að grípa það tækifæri sem við sjáum nú til að auka sölu Íslandsferða með arðbærum hætti. Við teljum að mikil umfjöllun um landið erlendis undanfarið og lágt gengi krónunnar skapi aukna sölumöguleika á ýmsum mörkuðum. Nú er komin á sú reynsla hjá fagaðilum erlendis og almenningi að þjónusta á Íslandi er góð þó samdráttur sé í efnahagslífinu og Ísland er jafn áhugaverður staður og verið hefur - jafnvel ennþá áhugaverðari. Við teljum rétt að nýta með þessum hætti þann styrk og sveigjanleika sem felst í því að reka öflugt markaðsstarf bæði hér heima og á mörkuðum okkar erlendis, og herðum enn róðurinn ytra", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. Icelandair gerir ráð fyrir því að aukningin í framboði félagsins fjölgi ferðamönnum Icelandair til landsins um 20-25 þúsund og að þeir muni koma með sem svarar sex milljörðum króna í erlendum gjaldeyri til kaupa á vöru og þjónustu. Þá mun þessi viðbót skapa um 100 bein störf í flugi og flugþjónustu félagsins og auk þess má gera ráð fyrir að yfir þrjú hundruð störf verði til í almennri ferðaþjónustu um landið til að sinna þessum fjölda ferðamanna. "Við ákvörðun um þessa aukningu horfum við auðvitað fyrst og fremst til arðsemi Icelandair, en það er vissulega gleðilegt að aukin sala erlendis hefur mikil áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi. Þetta er gríðarlega atvinnuskapandi grein og mikilvægt að stjórnvöld og raunar allur almenningur styðji við hana", segir Birkir Hólm. Leiðakerfið er undirstaðan Icelandair byggir leiðakerfi sitt á staðsetningu landsins mitt á milli Norður-Evrópu og Norður-Ameríku. Með leiðakerfinu er Icelandair unnt að þjóna þremur mörkuðum; heimamarkaðinum á Íslandi, ferðamannamarkaðinum til Íslands og alþjóðlegum flugfarþegum á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomu á Keflavíkurflugvelli. “Sú flugtíðni sem leiðarkerfi Icelandair tryggir - þ.e. um 150 flug í viku til og frá öllum helstu borgum austan hafs og vestan er grundvöllur ferðaþjónustunnar á Íslandi. Flugið skapar fjölmörg atvinnutækifæri um allt land og mikilvægi þess að halda uppi góðum samgöngum milli Íslands og annarra landa verður seint ofmetið. Við hjá Icelandair leikum þar lykilhlutverk og ætlum að gera áfram”, segir Birkir Hólm. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair s: 8645849 |
|||
|