2012-09-13 13:45:00 CEST

2012-09-13 13:45:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 1217 OG RIKV 13 0315


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 1217 og RIKV 13 0315  með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 1217:

Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.940 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.140 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,210 (flatir
vextir 3,15%). 

RIKV 13 0315:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.900 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.800 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,299 (flatir
vextir 3,48%).