|
|||
2010-09-15 16:06:02 CEST 2010-09-15 16:07:01 CEST REGULATED INFORMATION Reykjaneshöfn - FyrirtækjafréttirGreiðsluerfiðleikar ReykjaneshafnarReykjaneshöfn er í vanskilum með gjalddaga 1. maí sl. vegna greiðslu afb. og vaxta af skuldabréfaflokki nr. RNH08. Reykjaneshöfn hefur með aðstoð Reykjanesbæjar staðið í endurfjármögnun á langtímalánum Reykjaneshafnar, en lánaútboð Reykjanesbæjar hefur enn ekki borið árangur. Tafir við uppbyggingu álvers Norðuráls í Helguvík og fleiri verkefna til atvinnuuppbyggingar í Reykjanesbæ hafa átt sinn þátt í að lánaútboðið bar ekki árangur, og að lokum neikvæður fréttaflutningur af málefnum Reykjanesbæjar. Reykjaneshöfn átti einnig von á tekjum vegna lóðagjalda í Helguvík, sem hafa enn ekki komið, en eru væntanlegar á næstu vikum. Þær eru vegna Íslenska kísilversins ehf., Norðuráls ofl. Einnig hafa óskir Reykjaneshafnar um ríkisstyrk við hafnarframkvæmdir í Helguvík ekki borið árangur. Búið er að greiða hluta vanskilanna og semja um fullnaðar uppgjör innan tveggja mánaða. |
|||
|