2021-02-26 17:18:54 CET

2021-02-26 17:18:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reginn hf. – Reginn endurnýjar samning við Landsbankann hf. um viðskiptavakt



Reginn hf. og Landsbankinn hf. hafa endurnýjað samning um viðskiptavakt á hlutabréfum Regins hf. sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland.

Tilgangur viðskiptavaktarinnar er að efla viðskipti með hlutabréf Regins í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Landsbankinn hf. skuldbindur sig sem viðskiptavaki til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð á Nasdaq Iceland í hlutabréf Regins hf. að lágmarki 15.000.000 kr. að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er 30.000.000 kr. að nettó markaðsvirði sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskiptavakans sem gengið er að. Sé hámarksmagni dagsins náð, fellur niður skylda viðskiptavakans til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið, þar til gengið hefur verið á tilboð viðskiptavakans á mótlægri hlið og nettó viðskiptamagn er aftur komið undir daglegt hámark.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum mun vera magnveginn auk þess að ákvarðast af 10 daga flökti á verði hlutabréfa Regins hf. eins og það birtist í upplýsingakerfi Bloomberg á hverjum tíma. Sé birt 10 daga flökt minna eða jafnt og 20% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 1%, sé birt 10 daga flökt hærra en 20% en lægra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 2%, að lokum ef birt 10 daga flökt er jafnt og eða hærra en 35% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 3%.

Samningurinn tekur gildi frá og með 1. mars 2021 og er ótímabundinn en uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.


Nánari upplýsingar

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262