|
|||
2010-02-04 21:01:23 CET 2010-02-04 21:02:23 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirMarel breytir mynt á sambankaláni úr íslenskri krónu yfir í evruMarel hefur náð samkomulagi við Arion banka, Íslandsbanka og NBI um að breyta myntsamsetningu sambankaláns sem bankarnir veittu félaginu í maí 2009. Samkomulagið felur í sér að þeim hluta lánsins sem var í íslenskri krónu hefur verið breytt í evru sem er megintekjumynt félagsins. Fjárhæðin sem um ræðir nemur 66 milljónum evra. Yfir 99% tekna Marels er aflað utan Íslands og er myntsamsetning tekna og gjalda félagsins í ágætu jafnvægi. Stefna félagsins er að fjármagna reksturinn sem næst tekjumyntum. Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr gengisáhættu fjármögnunar og lækka vaxtarkostnað félagsins. Í lok þriðja ársfjórðungs 2009 námu skuldir Marel í íslenskum krónu 130 milljónum evra. Á fjórða ársfjórðungi var nýtt hlutafé að fjárhæð 41 milljónir evra gefið út og var fjárfestum boðið að greiða fyrir ný hlutabréf með skuldabréfum sem Marel hefur gefið út. Útboðið gerði Marel þar af leiðandi kleift að leysa til sín 61,8% af skuldabréfaflokki MARL 06 1 og 17,6% af skuldabréfaflokki MARL 09 1, og þar með minnka gengisáhættu tengdri íslenskri krónu. Nú er krónulánum umbreytt í evrulán að andvirði 66 milljónum evra. Nema skuldir í íslenskum krónum því nú um 34 milljónum evra og hefur stórlega dregið úr fjármagnskostnaði og gengisáhættu félagsins. Erik Kaman, fjármálastjóri Marel: ,,Þetta er mjög mikilvægt skref fyrir Marel. Á undanförnu ári höfum við unnið markvisst að því að lækka heildarskuldsetningu félagsins með sölu á eignum utan kjarnastarfssemi, bættu sjóðsstreymi frá rekstri og aukningu hlutafjár. Nýtt hlutafé hefur að mestu verið notað til að lækka skuldir félagsins í krónum. Með samningi við íslensku bankana um umbreytingu lána í evrur í stað króna er fjármögnun Marel að mestu í tekjumyntum félagsins, í samræmi við stefnu okkar.” Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila. |
|||
|