|
|||
2008-09-30 11:26:33 CEST 2008-09-30 11:27:34 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirStandard & Poor's lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs - sett á athugunarlista með neikvæðum vísbendingumMatsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í gær, 29. september 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum í 'A' úr 'A+'. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'A-' úr 'A'. Þá voru langtímaeinkunnir settar á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í 'A-2' úr 'A-1' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum 'A-1' var staðfest. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gert í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands vegna stuðnings við Glitni. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi. |
|||
|