|
|||
2014-08-28 18:19:45 CEST 2014-08-28 18:20:46 CEST REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Interim information (is)Sex mánaða árshlutareikningur 2014Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. -- Rekstrartekjur minnkuðu um 0,8% og voru 26,4 m€ (26,6 m€). -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 3,2 m€ (4,6 m€). -- Hlutdeild í afkomu HB Granda var 0,9 m€ til tekna (1,5 m€ til tekna). -- Hagnaður tímabilsins var 2,6 m€ (4,2 m€). -- Heildareignir voru 91,5 m€ (88,7 m€). -- Vaxtaberandi skuldir voru 24,3 m€ (24,2 m€). -- Eiginfjárhlutfall var 63% (63%). Rekstur Rekstrartekjur samstæðunnar voru 26,4 m€ og minnkuðu um 0,8% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs. Minni sala í Danmörku á tímabilinu var vegin upp af innkomu Swan Net USA í samstæðuna. Rekstrarhagnaður fyrir aðrar tekjur og gjöld var 14,4% af rekstrartekjum eða 3,8 m€ en var 13,6% fyrir sama tímabil á fyrra ári, eða 3,6 m€. Greiðslur til fv. forstjóra við starfslok vega þungt í rekstrinum en sú upphæð kemur til gjalda sem 1,6 m€. Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda, að frádregnum fjármagnsgjöldum, voru 0,6 m€ til tekna en var 1,0 m€ til tekna fyrstu sex mánuðina á fyrra ári. Hagnaður tímabilsins var 2,6 m€ en var 4,2 m€ sama tímabil fyrra árs. Efnahagur Heildareignir voru 91,5 m€ í lok tímabilsins. Eigið fé nam 57,2 m€, en af þeirri upphæð eru 7,4 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé Swan Net Gundry á Írlandi, Fjarðaneta á Íslandi, Nordsötrawl í Danmörku og Swan net USA. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok júní 63% af heildareignum samstæðunnar. Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,3 milljónum sem er nánast sama fjárhæð og var í byrjun ársins. Hjörtur Erlendsson, forstjóri: „„Salan fyrrihluta ársins er svipuð og á sama tímabili síðasta árs þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður í Danmörku. Velta Swan Net USA sem bætist við samstæðuna á þessu ári hefur að mestu vegið upp minni sölu þar. Rekstarhagnaður fyrir aðrar tekjur og gjöld er hærri en á sama tímabili í fyrra. Greiðslur til fv. forstjóra við starfslok setja mark á uppgjörið og veldur því að hagnaður tímabilsins er minni en árið áður ásamt því að hlutdeild í afkomu HB Granda minnkar frá fyrra ári.“ Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf., www.hampidjan.is. |
|||
|