2024-04-15 10:45:00 CEST

2024-04-15 10:45:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. mars 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.

Í viku 15 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 866.500 eigin hlut að kaupverði alls kr. 87.725.579 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Vika nrDagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
158.4.202413:41:1335.000101,503.552.50035.970.599
158.4.202414:14:3212.658101,501.284.78735.983.257
159.4.202410:34:0219.714100,501.981.25736.002.971
159.4.202413:21:08200.000100,7520.150.00036.202.971
159.4.202414:05:2412.658100,501.272.12936.215.629
159.4.202415:05:1517.128100,501.721.36436.232.757
1510.4.202411:18:10200.000101,2520.250.00036.432.757
1510.4.202412:18:235.000101,00505.00036.437.757
1510.4.202412:37:28150101,0015.15036.437.907
1510.4.202413:06:191.500101,00151.50036.439.407
1510.4.202413:14:2412.659101,001.278.55936.452.066
1510.4.202414:43:4312.658101,001.278.45836.464.724
1511.4.202411:07:09899101,0090.79936.465.623
1511.4.202412:11:502.970101,00299.97036.468.593
1511.4.202413:21:11623101,0062.92336.469.216
1511.4.202414:51:061.000101,00101.00036.470.216
1511.4.202415:14:01100.000101,5010.150.00036.570.216
1511.4.202415:18:17100.000101,5010.150.00036.670.216
1511.4.202415:29:46938101,0094.73836.671.154
1512.4.202410:59:1410.945101,001.105.44536.682.099
1512.4.202411:53:56100.000102,0010.200.00036.782.099
1512.4.202413:36:1220.000101,502.030.00036.802.099


Samtals866.500
87.725.579

Fyrir framangreind viðskipti í viku 15 átti bankinn 35.935.599 eigin hluti, sem nemur 1,80% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 2.137.861 hlut, sem nemur 0,11% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 216.820.889 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 25. mars síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2024.

Frá upphafi endurkaupaáætlunar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 36.802.099 eigin hluti eða sem nemur 1,84% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.