2017-01-10 19:13:58 CET

2017-01-10 19:13:58 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Sjóvá: Leiðrétting vegna fréttar 4. júlí 2016 kl. 10:33:57 CEST


Leiðrétting við tilkynningar um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við
endurkaupaáætlun 

Komið hefur í ljós að í ofangreindri reglubundinni tilkynningu um kaup Sjóvá á
eigin bréfum í viku 26 árið 2016 vantaði ein viðskipti. Um er að ræða
eftirfarandi viðskipti sem áttu sér stað 27. júní 2016 (vika 26). 

Dagsetning  Tími      Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
27.6.2016   11:55:18  605.522         11,66                  7.060.387     



Þetta leiddi til þess að uppgefinn fjöldi eigin hluta fyrir viðskiptin og
fjöldi eigin hluta eftir viðskipti, sem og hlutfall þeirra af heildarfjölda
hluta félagins og heildarkaupverð voru ekki rétt í reglubundnum tilkynningum um
kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem birtar voru frá og
með 4. júlí 2016 til og með 9. janúar 2017. Um er að ræða eftirfarandi
tilkynningar: 

11-07-2016, kl.10:59, 18-07-2016, kl.11:11, 25-07-2016, kl. 11:00, 01-08-2016,
kl.14:46. 08-08-2016, kl. 11:00, 15-08-2016, kl. 11:00, 22-08-2016, kl. 11:00,
29-08-2016, kl 11:00, 05-09-2016, kl. 10:55, 12-09-2016, kl. 11:00, 19-09-2016,
kl.11:06, 26-09-2016, 11:00, 30-09-2016, kl. 18:58, 10-10-2016, kl. 11:00,
17-10-2016, 11:00,24-10-2016, kl.10:19, 31-10-2016, kl. 10:00, 07-11-2016, kl.
09:55, 14-11-2016, kl. 10:00, 21-11-2016, kl.10:00, 28-11-2016, kl.10:00,
05-12-2016, kl. 10:00, 12-12-2016, kl.10.00, 19-12-2016, kl.10:00, 27-12-2016,
kl.09:58, 02-01-2017, kl.13:43., 09-01-2017, kl.10.00. ATH að tímasetningar eru
allar CEST. 

Í framangreindum tilkynningum breytast upplýsingar um fjölda eigin hluta Sjóvár
fyrir og eftir viðskipti til hækkunar sem og hlutfall af heildarhlutafé, sem
nemur þeim viðskiptum sem vantaði og greint er frá hér að ofan ef frá er talin
tilkynning frá 4. júlí 2016 þar sem fjöldi eigin hluta fyrir viðskiptin er
réttur. 

Í nýjustu tilkynningu Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við
endurkaupaáætlun sem birt var þann 9. janúar 2017 kl.10.00 CEST kom fram að
Sjóvá ætti 56.430.449 eigin hluti fyrir viðskiptin og ættu að þeim loknum
57.489.918 eigin hluti eða sem nemur 3,68% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Miðað við ofangreinda leiðréttingu breytast hlutföll og samtölur í
tilkynningunni 9. janúar 2017 með eftirfarandi hætti: 

Sjóvá átti 57.035.971 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
58.095.440 eigin hluti eða sem nemur 3,72% af útgefnum hlutum í félaginu.