|
|||
2008-10-09 01:12:53 CEST 2008-10-09 01:13:57 CEST REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - FyrirtækjafréttirFitch lækkar lánshæfiseinkunn KaupþingsAlþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka hf. Langtímaeinkunn bankans var lækkuð úr BBB í CCC og skammtímaeinkunn úr F3 í C. Báðar einkunnir eru á athugunarlista. Stuðningseinkunn bankans er lækkuð úr 2 í 5, óháð einkunn er lækkuð úr C í E og stuðningseinkunnargólf er lækkað í "ekkert gólf" úr BBB-. Þessar einkunnir eru teknar af neikvæðri vöktun. Nánari upplýsingar: Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar, s. 444 6126 Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, s. 444 6112 |
|||
|