2015-02-26 14:06:21 CET

2015-02-26 14:07:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn ORK - Ársreikningur

Fagfjárfestasjóðurinn ORK – Ársreikningur fyrir árið 2014


Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. 

  -- Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 32 þúsundum króna samkvæmt
     rekstrarreikningi á árinu 2014.
  -- Hrein eign sjóðsins nam 672 þúsundum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahag
     þess 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign á árinu 2014, í samræmi
     við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi
     þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í
     samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar um ársreikning Fagfjárfestasjóðsins ORK veitir starfsfólk
Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.