2015-04-28 16:00:01 CEST

2015-04-28 16:00:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Reykjavíkurborg ársreikningur 2014


Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 var lagður fram í borgarstjórn
í dag þriðjudaginn 28. apríl. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um
11.106 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8.120 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 2.986 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu
ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna
hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Þar vegur þyngst lækkun vaxtagjalda vegna lækkunar vaxtaberandi
skulda.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 15.569 mkr sem er
2.791 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir sem skýrist meðal annars
af hækkun launakostnaðar. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok
samtals 504.396 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 287.145 mkr og
eigið fé nam 217.252 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 11.274 mkr. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.831 mkr en áætlun gerði ráð fyrir
að hún yrði jákvæð um 488 mkr á árinu og er niðurstaðan því lakari en gert var
ráð fyrir, sem nemur 3.318 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var
neikvæð um 2.897 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 852 mkr
eða 3.748 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Lakari rekstrarniðurstaða
skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar eða 1.193 mkr undir
áætlun, hærri gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar eða 1.012 mkr. yfir áætlun og
hækkun launakostnaðar umfram áætlun um 961 mkr. Að teknu tilliti til
ofangreindra frávika er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 335 mkr. 

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til
eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta
teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu
borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf.,
Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita
Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk
Aflvaka hf og Jörundar ehf. 

Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. janúar 2014 kom til framkvæmda
það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði  skylt að skilja á
milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka
náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til
starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta
lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu
Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og
fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi
breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameiginleg stoðþjónusta við
dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs
þjónustusviðs. 



Reykjavík, 28. apríl 2015.

Nánari upplýsingar veitir
Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321