2011-09-22 18:22:08 CEST

2011-09-22 18:23:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Viljayfirlýsing um kaup Thyboron Skibssmedie A/S á hleradeild Hampiðjunnar undirrituð


Hampiðjan og Thyboron Skibssmedie A/S hafa undirritað viljayfirlýsingu um að
Thyboron kaupi hleradeild Hampiðjunnar. Um er að ræða kaup á hugverkum svo sem
teikningum, hönnun, vöruheitum ásamt umsóttum og útgefnum einkaleyfum tengdum
toghlerum.  Kaupverðið, sem er trúnaðarmál, mun að hluta til verða í formi
eignarhlutar í Thyboron Skipssmedie A/S.  Stefnt er að því að skrifa undir
samning um kaupin á næstu vikum. 

Thyboron Skipssmedie A/S var stofnað árið 1967 af Börge Stausholm Andreasen og
hefur fyrirtækið frá þeim tíma sérhæft sig í smíði toghlera. Thyboron er einn
stærsti toghleraframleiðandi heims og hefur framleitt og selt um 280 hlerapör
fyrstu níu mánuði ársins. 



Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar:

Við erum afar ánægðir með að sameina krafta okkar við Thyboron. Við höfum lagt
mikið upp úr þróun á hlerum og erum vissir um að Thyboron mun halda því starfi
áfram af krafti. Þá eignast þeir með kaupunum áhugaverðar umsóknir um
einkaleyfi á tækni fyrir toghlera. Hampiðjan mun selja hlera frá Thyboron á
þeim mörkuðum þar sem slíkt verður talið hagkvæmt fyrir viðskiptavini okkar.
Við munum nú einbeita okkur að þróun á veiðarfærum fyrir sjávarútveg og svo
framleiðslu og sölu á ofurtógi fyrir olíuiðnað. Þar er og verður í mörg horn að
líta.