2016-07-15 17:47:02 CEST

2016-07-15 17:47:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur staðfest BBB+/A-2 lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum


Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur staðfest BBB+/A-2
lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. Standard & Poor’s
reiknar með kröftugum hagvexti næstu árin, knúnum af ferðamannaiðnaði og
öflugri einkaneyslu. Stöðugar horfur vega saman annars vegar möguleika á að
jöfnuður ríkisfjármála og utanríkisviðskipta batni umfram væntingar næstu tvö
árin og hins vegar áhættu vegna losunar fjármagnshafta og ofhitnunar
hagkerfisins.