2016-04-05 12:34:00 CEST

2016-04-05 12:34:00 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Garðabæjar


Útboð á skuldabréfum Garðabæjar fór fram 4. apríl 2016 í umsjón
fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru verðtryggð
jafngreiðsluskuldabréf til 15 ára í nýjum opnum flokki GARD 16 01 að andvirði
allt að 1.000 milljónum króna. Tilboð bárust fyrir samtals 1.820 milljónir
króna með ávöxtunarkröfu á bilinu 3,04-3,53%. 

Bæjarráð Garðabæjar samþykkti 5. apríl 2016, með fyrirvara um staðfestingu
bæjarstjórnar, að taka tilboðum að andvirði 720 milljónum króna á
ávöxtunarkröfunni 3,15%. Niðurstaða útboðsins verður lögð fyrir bæjarstjórn 7.
apríl 2016. 

Fyrirhugað er að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði
Kauphallar Íslands og verður þá fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að
lágmarki eins dags fyrirvara. 



Nánari upplýsingar veita:

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar, á netfanginu
ludvik@gardabaer.is eða í síma 525-8530 

Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum Arion banka, á netfanginu
birgir.gudfinnsson@arionbanki.is eða í síma 444-7337