2016-03-04 16:57:32 CET

2016-03-04 16:57:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Félagsbústaðir hf. - Ársreikningur

Félagsbústaðir - Ársreikningur 2015


Félagsbústaðir hf, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka
félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera
sjálfbær. Félagið á og rekur 1901 almennar leiguíbúðir auk 307 þjónustuíbúða
fyrir aldraða ásamt 118 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals
2.326 íbúðir í Reykjavík. 

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á árinu 2015 námu 3.162 millj. kr., sem er
2,7% aukning tekna frá árinu á undan aðallega vegna verðlagshækkunar leigu og
stækkunar eignasafnsins. 

Rekstrargjöld námu samtals 1.660 millj. kr. og hækkuðu milli ára um 7,4%. Af
einstökum rekstrarþáttum hækkaði rekstrarkostnaður fasteigna um 4,6% og
launakostnaður um 1,1%. Gjaldfært viðhald fasteigna hækkaði um 12,1% milli ára
og nam um 1,25% af verðmati eigna í árslok. Framlag til afskrifta leiguskulda
hækkaði úr 43 millj. kr. í 49 millj. kr., eða um 13,4% og svaraði til um 1,7 %
af leigutekjum ársins miðað við 1,5% árið á undan. 

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og
matsbreytingu fjárfestingaeigna drógst saman um 2,0% milli ára, úr 1.533 millj.
kr. árið 2014 í 1.502 millj. kr. árið 2015. 

Hrein vaxtagjöld námu 962 millj. kr. og jukust um 0,8% milli ára og vaxtaþekja
rekstrarhagnaðar ársins 2015 var 1,56% miðað við 1,61 árið á undan. 

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu
eigna nam 540 millj. kr. á árinu 2015 miðað við 579 millj. kr. árið á undan sem
er 2,0% lækkun hagnaðar milli ára. 

Verðbreyting lána nam samtals 576 millj. kr.

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við mat fasteignaskrár
Þjóðskrár Íslands sem var í gildi í árslok 2015 að teknu tilliti til hækkunar á
vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli í Reykjavík frá febrúar 2015. Matsbreyting
fjárfestingaeigna félagsins nam 4.080 millj. kr. á árinu 2015 en var 4.461
millj. kr. árið 2014. 

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 4.051 millj.kr. á árinu 2015 en var 4.713
millj.kr. árið 2014. 





Efnahagsreikningur 31.12.2015

Heildareignir Félagsbústaða hf. í árslok 2015 námu 53,9 milljörðum kr. og
jukust um 6,6 milljarða kr. á árinu, eða um 14%. Matsbreytingar
fjárfestingaeigna skýra eignaaukninguna að stærstum hluta en auk þess fjölgaði
fjárfestingaeignum um 84 á árinu. Eigið fé félagsins nam 21,7 milljörðum.kr. í
árslok 2015 og jókst um tæpa 4,3 milljarða kr. milli ára, eða um 24,5%.
Eiginfjárhlutfall var 40,2% í árslok 2015 en var 36,8% árið á undan. 

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 590 millj. kr. á árinu 2015 sem er um 18,9 millj.
kr. meira en árið á undan. Fjárfestingar á árinu 2015 námu 2.389 millj. kr.
miðað við 711 millj. kr. árið áður. Fjármögnunarhreyfingar ársins voru með
innstreymi sem nam 1.797 millj. kr. samanborið við 141 millj. kr. árið áður. Á
árinu 2015 keypti félagið 85 íbúðir og seldi 1 íbúð.