2010-09-08 17:31:53 CEST

2010-09-08 17:32:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0117


Mánudaginn 13. september kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0117 sem er með gjalddaga 17. janúar 2011. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. september 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi fimmtudaginn 16.
september 2010.