2012-11-16 10:40:39 CET

2012-11-16 10:41:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Polfoss skip Eimskips strandar við eyjuna Alrta


Um klukkan 0600 í morgun (16.11.2012) strandaði frystiskipið Polfoss skip
Eimskipafélagsins við Eyjuna Altra í norður Noregi. 

Ekki urðu slys á áhöfn og ekki vitað um skemmdir á skipi og farmur er
óskemmdur. Polfoss strandaði á sandgrynningum og ekki hefur verið vart við
neinn olíuleka út skipinu. Skipið var að á leið frá Melbu til Alesund þegar
óhappið varð. Veður á standstað er gott. Áhöfnin er að meta aðstæður og næsta
flóð er um klukkan 13.45 á staðartíma. 

Ekkert er vitað um tildrög strandsins að svo stöddu en félagið er vátryggt
fyrir tjónum sem þessum. 

Frekari upplýsingar verða veittar þegar þær liggja fyrir.