2022-09-29 18:19:39 CEST

2022-09-29 18:19:39 CEST


REGULATED INFORMATION

English
Vátryggingafélag Íslands hf. - Changes in company's own shares

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar 

Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) þann 17. mars 2022 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins. 

Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. 

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru 100.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 5,71% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.750.000.000 að nafnvirði. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 1. febrúar 2023 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.    

Endurkaup vátryggingafélaga í þeim tilgangi að lækka hlutafé eru háð fyrirfram samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður sérstaklega þegar slíkt samþykki hefur verið veitt og endurkaup munu hefjast.