|
|||
2010-12-22 16:07:42 CET 2010-12-22 16:08:42 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLeiðrétting - Landsvirkjun kaupir hlut Þingeyjarsveitar í Þeistareykjum - Frétt birt 2010-12-22 15:53:55Leiðrétting: Ný frétt - Fyrri frétt var send út 29. september 2010 Landsvirkjun og Þingeyjarsveit hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 4,0 % hlut Þingeyjarsveitar í einkahlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Eftir kaupin á Landsvirkjun rúmlega 96,7% hlut í félaginu, Orkuveita Húsavíkur 3,2% og Þingeyjarsveit 0,087%. Kaupverðið eru tæpar 2 milljónir bandaríkjadollara. Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Félagið hefur fjárfest umtalsvert í því skyni. Meðal annars hafa verið boraðar sex djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að á Þeistareykjum sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar en jarðhitasvæðið á Þeistareykjum er talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands. Þeistareykir ehf. munu áfram stunda rannsóknir á svæðinu og er gert ráð fyrir að félagið fjárfesti í rannsóknum og öðrum undirbúningsframkvæmdum vegna uppbyggingar raforkuvinnslu fyrir allt að 720 milljónir króna á árinu 2011. Nánari upplýsingar veita: Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar í síma 898 7640 og Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma 515-9000 eða 849-2122. |
|||
|